Engan æsing
15.01.2007 13:43:28 / Jóna Jóns

Labb, video, sund og rjúpur

Yndisleg helgi er að baki. Laugardagurinn var notaður í langan labbitúr með barnavagninn og um kvöldið var videokvöld . Við tókum fjölskyldumyndina Princess diaries 2 og hún var alveg ágæt. Sniðugt að hafa eitt kvöld í viku þar sem fjölskyldan kemur saman og gerir eitthvað.

Á sunnudagsmorgun var svo fyrsta sundferðin hennar Katrínar og restin af deginum fór í að undirbúa rjúpnaveislu sem við buðum Indriða og Birnu í. Bestu rjúpur sem ég hef smakkað - takk fyrir okkur Stebbi bróðir besta rjúpnaskytta :haha::haha::haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.01.2007 16:52:04 / Jóna Jóns

Nýtt ár og byrjuð að vinna

Gleðilegt nýtt ár elskurnar !

Hér á heimilinu ríkir meira skipulag en venjulega - frúin byrjuð að vinna aftur hálfan daginn og litla barnið enn alfarið á brjósti. Þetta gengur þó allt ágætlega fyrir utan að sú stutta fékk hita um síðustu helgi og er enn eitthvað slöpp ;/ Ég er heppnust í heimi með eiginmann :haha:

Skoðunin: Mér finnst að við ættum að skoða það vel hvort við viljum taka upp Evru í stað krónunnar. Bara gera góðan lista yfir kosti og galla svo við getum myndað okkur upplýsta skoðun á málinu... :$


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.12.2006 12:14:52 / Jóna Jóns

Jólakveðja

Ahhh... mikið er ég fegin að jólainnkaupin voru afstaðin þegar þessi hláka brast á!! Dásamlegt að dunda bara heima við að pakka inn, þrífa, baka, skreyta og hlusta á jólalögin meðan rigningin og vindurinn hamast á rúðunum :haha:

Gleðileg jólin lömbin mín og njótið þess sem þau færa okkur.


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.12.2006 08:55:40 / Jóna Jóns

Hárlos

Kræst.... Þessi brjóstagjöf er að ganga frá hárinu á mér - þvílíkt hárlos!!:( Ég má þakka fyrir að standa ekki með beran skallann þegar ég er búin að blása mig eftir sturtuna 8|

» 0 hafa sagt sína skoðun

07.12.2006 17:26:40 / Jóna Jóns

Jólavertíðin

Ég hef verið að stússast í ýmsu sem viðkemur undirbúningi jólanna að undanförnu og miðar bara ágætlega áfram. Er samt ekki þessi aðdáunarverða týpa sem bakar 10 sortir, þrífur loftin, föndrar jólakortin og prjónar jólagjafirnar... Reddaði t.d. jólakortunum á innan við fimm mínútum á netinu :haha::haha::haha:

Mér finnst umhugsunarefni hve margar verslanir eru settar á laggirnar á þessum uppgripstíma sem desember er. Dæmi um það er öflugt horn frá Leikbæ í Nettó og einhver dótabúð sem er komin í húsnæði sem var notað sem kosningaskrifstofa Kristjáns í síðasta mánuði. Svona verslanir fleyta rjómann af jólavertíðinni og eru svo horfnar í janúar jafn skjótt og þær birtust... Annað en blessaður Dótakassinn sem hokrar þarna á horninu allt árið um kring og reddar manni þegar afmælin og öskudagurinn banka upp á. Svipuð dæmi er með bóksölu o.fl.... Ég veit ekki með ykkur en ég beini frekar mínum viðskiptum að þeim sem eru með stabílan rekstur ;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

01.12.2006 13:20:40 / Jóna Jóns

Forsetabíllinn

Ég veit ekki með ykkur, en mér finnst að forsetinn ætti að skammast til að borga fyrir gamla forsetabílinn sem hann bað um að yrði gerður upp. Alveg til skammar hvernig þetta mál er búið að vera og einhvernveginn svo taktlaust...!

» 5 hafa sagt sína skoðun

27.11.2006 13:27:40 / Jóna Jóns

Prófkjörsslagurinn

Þá er ég komin aftur til rænu eftir prófkjörsslaginn og sætan sigur :) Maður hefur lítið annað gert síðustu vikur en hugsa um prófkjörið og unnið hörðum höndum að því að koma sínum mönnum á framfæri. Ég er afskaplega ánægð með niðurstöðuna - gæti ekki verið betri!!

Við fórum reyndar suður þegar vonda veðrið var um daginn, veðurtepptumst á báðum leiðum, ég missti af mikilvægum fundi og komst ekki til að hitta helminginn af þeim sem ég ætlaði að hitta. En við komumst í leikhús, hittum Freysa og co áður en við fórum heim aftur þannig að ferðin var ágæt. Þyrfti samt að fara aftur fyrir jól - en nenni varla :(

Svo er bara labbað og labbað í fæðingarorlofinu - ekkert að láta smá snjó stoppa sig :)


» 1 hafa sagt sína skoðun

01.11.2006 17:19:11 / Jóna Jóns

Fréttaflutningur

Mér er brugðið 8|

Vísitölufjölskyldan mín sat og gæddi sér á kvöldmatnum í gærkveldi með sjö-fréttirnar í bakgrunninum. Hefðbundinn kvöldverður þar sem allir sitja saman og foreldrarnir sussa á krakkana til að geta heyrt fréttirnar. Þetta er ekki í frásögur færandi nema af því að tvær af fréttunum voru mjög svo svæsnar - 10 útlendingar reyna að nauðga íslenskri konu á skemmtistað og maðurinn hennar fluttur á sjúkrahús eftir að hafa reynt að verja hana fyrir áganginum og nemendur Listaháskólans tjá sig með því að karlnemandi pissar yfir kvennemanda!!!

Þið getið rétt ímyndað ykkur að átta ára stúlka þurfti að fá útskýringar á þessu framferði - hvort þetta væri eðlilegt hjá fullorðnu fólki :S Spurning hvort það ætti að setja reglur um að flytja svona fréttaflutning í 10 fréttirnar?? Mér finnst ekki að átta ára börn þurfi að vita að svona nokkuð sé til - þau eru ekkert bættari með því.


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.10.2006 14:16:45 / Jóna Jóns

Bíóferð

Við hjónin brugðum okkur í bíó í gærkvöldi - sáum Mýrina. Ég get alveg mælt með henni því hún er að mínu mati vel gerð, fyndin, sýnir íslenskan kúltúr á skemmtilegan hátt, leikararnir eru góðir - sérstaklega Ingvar og handritið er gott. Ég er ekkert sérstaklega hrifin af íslenskum bíómyndum, finnst þær full þunglyndislegar yfirleitt og flestir geðveikir, en þessi var öðruvísi.

Ebba frænka kom eins og Mary Poppins og passaði stelpurnar. Þetta var í fyrsta sinn sem Katrín er pössuð og það gekk bara rosa vel. Öndvegisbarnapía hún Ebba - ástarþakkir :haha:


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.10.2006 09:00:10 / Jóna Jóns

Hagkaup hugsar fyrir þig...!

Var að velta fyrir mér hvort þetta gæti ekki verið nýtt slagorð fyrir Hagkaup. Maður þarf nefnilega ekkert að hugsa sjálfur lengur - vöruúrvalið sem er í Hagkaup segir það sem segja þarf. Jólaskraut og bækur fyrir jólin, sumarblóm og 17. júní fánar á vorin og núna síðast vetrardekkin!! Snilld segi ég - spurning hvort þeir hafi góða hugmynd um hvernig er hægt að brjóta saman teygjulök :$

Fór á Karíus og Baktus í gær og get ekki ímyndað mér annað en að sú sýning sé rekin með gríðarlegum hagnaði. Stutt sýning (25 mínútur) sem hægt er að sýna fjórum sinnum á dag fyrir 60 manns í einu, húsnæði á vegum bæjarins, lágmarkskostnaður við leikmynd (8 hvítir kassar), tveir leikarar - allt annað á bandi og rúmlega þúsundkall inn á haus!! Allir glaðir þegar út er komið - enda er svo flott að fara í leikhús :)


» 7 hafa sagt sína skoðun

18.10.2006 14:39:43 / Jóna Jóns

Lög unga fólksins

Smellið á tengilinn til að heyra lagið sem eldri dóttir mín hlustar á daginn út og inn þessa dagana: http://b2.is/?sida=tengill&id=186699

Sjaldan fellur eplið langt frá eikinni ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

18.10.2006 12:23:21 / Jóna Jóns

Enn á lífi

Ég er enn á lífi og allt gott að frétta. Dagarnir ganga sinn vanagang og tíminn flýgur einhvernveginn áfram - finnst ég alltaf vera að vakna eða fara að sofa ;)

Um síðustu helgi skruppum við Katrín í Mývatnssveitina á kjördæmisþing Sjálfstæðisins hér í NA. Þvílíkt rok og sandfok - en við létum það ekki á okkur fá. Daman var alveg sérdeilis góð allan tímann, en var næstum búin að ropa í miðju sjónvarpsviðtali við Geir Haarde hehehe.... Held að hún verði pólitíkus ef þessi lína verður áfram í uppeldinu hjá mér ;)

En hvað finnst ykkur um hvalveiðarnar - allir sáttir?


» 3 hafa sagt sína skoðun

09.10.2006 18:31:29 / Jóna Jóns

Búin að kíkja á Kárahnjúka

Brá mér austur í land um helgina til að skoða Kárahnjúkasvæðið áður en lónið hækkar meira. Ótrúlegt að verða vitni að svona stóru dæmi og eiginlega hlakka ég til að fara þarna aftur til að sjá hvernig þetta breytist allt. Held varla að þetta hefði orðið mikið aðdráttarafl fyrir ferðamenn fyrir aðgerðirnar, m.a. vegna þess hve fljótt verður kalt þarna á haustin. Átti síðan indæla helgi með nýjustu fjölskyldunni á Egilsstöðum í sætum litlum bústað sem BHM útvegaði mér :) Takk fyrir móttökurnar Stebbi, Solla og Jón Auðunn :haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.10.2006 17:56:54 / Jóna Jóns

Góð helgi að baki

Litla dúllan okkar fékk nafnið Katrín Sól :) Hægt er að skoða myndir á síðunni hennar á www.barnanet.is/litladulla. Lítið annað að frétta í bili... hef ekki séð fréttir í fjóra daga ;)

» 4 hafa sagt sína skoðun

29.09.2006 14:58:26 / Jóna Jóns

Skírnarveisla undirbúin

Það á að skíra litlu skvísuna á morgun og sem betur fer á ég mömmu sem er komin til að galdra fram veisluna :) Það verður eitthvað þegar ég verð orðin ættarhöfuð fjölskyldunnar og á að aðstoða mína niðja við slíkt - bakaríisJóna :$

» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 18